13.06.2011 21:28:18 / tindastoll4kvk
Æfingin
á morgun byrjar kl. 5. Kristveig verður með hana því ég verð með 3.
flokk í leik. Það eiga allir að byrja að hita upp þangað til Kristveig
kemur en hún verður aðeins of sein.
Kv. Gaui
»
09.06.2011 12:31:20 / tindastoll4kvk
Þá er enn og aftur búið að færa þennan leik.
Núna vegna slæms veðurs og verri veðurspár. Það er spáð vetrarfærð og allir komnir á sumardekk og þess vegna var ákveðið að fresta leiknum um sólarhring og þær koma þá þjálfaralausar á morgun. (Fyrir ljóskurnar þá verður liðsstjóri með þeim
). Mæting þá kl. 18 á morgun heima hjá Guðnýju, Kalla, Árdísi, Hauk og Skírni man ekki hvað kisi heitir
.
kv. Gaui
»
08.06.2011 22:45:24 / tindastoll4kvk
Jæja
það var fín æfing í dag. Takk fyrir það.
Hópurinn á morgun er skipaður
eftirfarandi stelpum:
Fanney, Hrafnhildur, Tinna, Guðný, Heiðdís,
Maríanna, Guðlaug, Hugrún, Kolbrún, Jóna María, Gunnhildur, Nótt Þórunn,
Valdís, Stella, Telma, Kolfinna, Lísa.
Mæting kl. 18 heima hjá Árdísi,
Suðurgötu 2.
Við sjáumst á vellinum svo.
Kv. Gaui
»
06.06.2011 08:50:18 / tindastoll4kvk
Næstu æfingar verða á morgun þriðjudag kl. 16.30, miðvikudaginn kl. 18.30 og fimmtudag kl. 16.00 sem er síðasta æfing fyrir leik sem er á föstudaginn kl. 20.00.
Ástæðan fyrir þessum mismunandi tímasetningum er að það eru leikir hjá mér alla daga í vikunni nema þriðjudag. Ég er því að púsla æfingum í kringum leikina.
Kv. Gaui
»
20.05.2011 12:30:24 / tindastoll4kvk
Ég er enn lasinn heima

og verð því að aflýsa æfingu í dag einnig. Nú farið þið út að hlaupa einu sinni yfir helgina í

staðinn. Þið hlaupið á hlaupabrautinni:
3 hringi rólega
2 hringi hratt
50 kviðæfingar og 40 bakæfingar 10 armbeygjur
2 hringi hratt
1 hring rólega
50 kviðæfingar og 40 bakæfingar 10 armbeygjur
2 hringi hratt
2 hringi rólega
Teygja framan á lærum, aftan á lærum, kálfum, nára og rassi.
Baráttu kveðja Gaui
»
18.05.2011 14:06:31 / tindastoll4kvk
Hæ stelpur og takk fyrir gærdaginn. Málið er að nú er kallinn eiginlega lagstur í flensu of ég ákvað því að aflýsa æfingunni í kvöld.
Varðandi leikinn í gær þá var ég ánægður með ykkur en að sjálfsögðu fannst mér úrslitin ekki góð. Allir lögðu sig fram og fengu mikla reynslu sem vel er hægt að byggja ofaná.
kv. Gaui
»
17.05.2011 00:15:19 / tindastoll4kvk
Nú er staðan þannig að 4 stelpum vantar far. Guðlaug ef mamma þín gæti keyrt þá væri það frábært og þið mynduð taka Árdísi, Tinnu og Hugrúnu með ykkur. Viltu vinsamlegast láta mig vita Guðlaug hvort þetta gangi upp.

Annars lítur dæmið svona út:
Bertína:
Gaui
Nótt Þórunn
Valdís
Birgitta
Telma
Sigurlaug:
Kolbrún
Jóna María
Kolfinna
Hrafnhildur
dj Svansí
Gunnhildur
Fanney
Bergþóra
Hofsós/Hólar
Guðný Vaka
Heiðdís
Þetta verður alveg frábær reynsla og góð byrjun á góðu sumri.

Sjáumst á morgun.

Kv. Gaui
»
16.05.2011 16:45:44 / tindastoll4kvk
Jæja allt tók við sér og nú er stefnan að fara en í hádeginu leit þetta ekki vel út.
Miðað við að það fari einar 12 - 15 stelpur talan ekki alveg komin á hreint auk þjálfara þarf slatta af bílum undir liðið.
Gaui getur ekki verið á bíl og Tindastólsbíllinn er bilaður uppi á Öræfum. Það kemur því til kasta foreldra að keyra stelpurnar á morgun.
Fara þarf að stað klukkan 15:00 á morgun og bensínpeningur er krónur 2000 á mann.
Leikurinn er síðan klukkan 17:00.
Miðað við að það eigi að fara klukkan 15:00 þá þýðir það stelpur að við förum klukkan 15 og þið mætið 14:50
Passa að hafa pening tiltækan til þess að foreldrar þurfi ekki að fara í þá vandræðulegu athöfn að rukka
Passa líka að það sé jafnt í öllum bílum svo allir fái greitt fyrir aksturinn við erum jú eitt lið en ekki einstaklingar sem erum að fara.
Annar segir Tuðný bara gangi ykkur vel á morgun og bíður spennt eftir því að sjá þetta leysast allt hér í athugasemdakerfinu.
»
12.05.2011 11:29:40 / tindastoll4kvk
Sæl verið þið
Gaui stefnir að því að fara með stelpurnar á Akureyri næsta þriðjudag 17. mai. Leikurinn á að byrja ef ég man rétt klukkan 17:00 og þurfum við foreldrar að manna keyrslu.
Eru einhverjir sem geta farið í það verkefni. Eins þurfum við að koma okkur upp kerfi yfir það hvað kostar í hverja ferð. Væri gott að fá ykkar skoðun á því.
Ég talaði við Ómar Braga í morgun og það er möguleiki á því að við gætum fengið bíl hjá félaginu sem tekur þá sjö stelpur.
Alla vega endilega stelpur fáið foreldra ykkar til að skoða þetta og sjálfboðaliðar í akstur óskast.
kveðja
Guðný
»
05.05.2011 23:32:46 / tindastoll4kvk

Ég steingleymdi að ég er að kenna sund á sundnámskeiði fyrir 1. - 3. bekk á morgun frá kl 13 - 16. Æfingin sem átti að vera kl. 13 á gervigrasinu fellur því niður. Næsta æfing á skallaflötinni kl. 16.00 á mánudaginn.
Sorry
Kv. Gaui
»
02.05.2011 09:53:47 / tindastoll4kvk
Hæ hæ og takk fyrir góðan fund í gær.

Eins og við töluðum um á fundinum þá ætlum við að hætta að æfa í reiðhöllinni núna og fara að æfa úti í staðinn.

Í dag mætum við við gervigrasið kl. 16.00 með hlaupaskó og fótboltaskó. Þið farið og hlaupið frá gervigrasinu kl. 16.00 og endið það svo þar aftur kl. 16.30 og þá verð ég komin á gervigrasið.
Hlaupaprógram dagsins verður:
Skokka frá gervigrasinu niður á hlaupabraut og skokka áfram tvo hringi þar.
Taka síðan þrjá hringi þar sem þið hlaupið hratt hálfan hring en svo mjög rólegt skokk seinni helminginn. Samt ekki ganga.
Þið ljúkið þessu svo með skokki þrjá hringi og aftur upp á gervigras. Þegar þangað er komið á að taka hreyfiteygjurnar allt sinnum 30.

Kv. Gaui
»
01.05.2011 10:26:17 / tindastoll4kvk
Hæ hæ

Ég ætla að hafa leikmannafund í vallarhúsinu í kvöld. Fundurinn snýst um að snúa bökum saman það styttist í islandsmót og ef við ætlum að ná árángri þar þurfum við að samstilla hópinn og svo þjálfarann með.
Nokkrar spurningar sem þið þurfið að hugleiða og svara á fundinum:
Hver á að vera fyrirliði?
Hvað er þitt markmið í boltanum?
Hvað á að vera markmið liðsins í sumar?
Hvernig er þitt óskabyrjunarlið?
Væruð þið til í að heyra í hvor til að tékka hvort hinar vita af fundinum annari og líka boða þær sem hugsanlega verða með í sumar en eru ekki byrjaðar að æfa. Við vonandi sjáum á fundinum hvernig æfingahópur sumarsins lítur út.
Kv. Gaui
Kv. Gaui
»
03.04.2011 19:38:06 / tindastoll4kvk
Á morgun mánudaginn 4 apríl verður ekki æfing hjá ykkur. Í staðin verður æfing á gervigrasinu kl. 16. á þriðjudaginn. Þetta er útaf prófæfingunni minni í reiðhöllinni.
Kv. Gaui
»
28.03.2011 08:25:38 / tindastoll4kvk
Æfingin í dag verður kl. 16.30. Mjög mikilvægt er að þið mætið á réttum tíma því þessi æfing er prófæfing hjá mér.
Kv. Gaui
»
01.03.2011 23:00:19 / tindastoll4kvk
Næsta æfing er á morgun kl. 16.30. Eldra árið mætir eingöngu vegna árshátíðar hjá yngra árinu. Á föstudaginn fellur æfingin niður vegna árshátíðar í íþrótahúsinu. Í næstu viku verður æfing á mánudaginn kl. 17.00 í Reiðhöllinni en svo tekur við vetrarfrí í boltanum eins og í skólanum. Við æfum svo aftur mánudaginn 14. mars kl. 17.00 í Reiðhöllinni.
Kv. Gaui
»
Síður:
1 2 3 ...
14